Síðastliðinn föstudag var útgáfuhóf þar sem frumsýnt var nýtt fræðsluefni um konur í íþróttum.
Þetta er metnaðarfullt fræðsluverkefni sem unnið er í samstarfi Háskólans í Reykjavík, Knattspyrnusambands Íslands, ÍSÍ og UMFÍ. Að gerð fræðslumyndbandanna standa meðal annarra Hafrún Kristjánsdóttir, prófessor og deildarforseti íþróttafræðideildar HR, og Lára Hafliðadóttir, starfsmaður KSÍ á vísindasviði og doktorsnemi í íþróttavísindum við HR. Þær hafa leitt verkefnið og gengt lykilhlutverki í þróun, innihaldi og heildarhugsun efnisins.
Fræðsluefnið samanstendur af 44 myndböndum, þar sem fjölbreyttur hópur sérfræðinga fjallar um lykilþætti tengda líkamlegri, andlegri og félagslegri velferð íþróttakvenna. Myndböndunum er skipt upp eftir efni fyrir yngri íþróttakonur og fyrir eldri iðkendur, þjálfara, foreldra og aðra sem koma að íþróttastarfi.
Markmið verkefnisins er að efla þekkingu og fræðslu, styrkja heilsu og vellíðan íþróttakvenna, hámarka frammistöðu þeirra og draga úr líkum á meiðslum. Hér fyrir neðan er hlekkur á myndböndin. Við hvetjum íshokkíkonur og þjálfara til þess að kynna sér efni þeirra.