Keppnistímabilið 2019-2020

Stjórn Íshokkísambands Íslands hefur samþykkt að ekki verður keppt frekar á keppnistímabilinu 2019-2020.  Einnig samþykkti stjórn ÍHÍ eftirfarandi á stjórnarfundi ÍHÍ miðvikudaginn 1. apríl síðastliðinn;

Enginn Íslandsmeistari verður krýndur í meistaraflokki karla tímabilið 2019-2020.

Meistaraflokkur karla Skautafélags Akureyrar, SA Víkingar, eru deildarmeistarar 2019-2020 og fá því keppnisréttinn í álfukeppni Alþjóða Íshokkísambandsins (IIHF) eða Continental Cup IIHF, svo lengi sem keppnin verði haldin vegna Covid-19.

Núverandi stöðutafla í deildarkeppnum U18, U16 og U14, keppnistímabilið 2019-2020, er lokastaða Íslandsmóta ÍHÍ.

Skautafélag Akureyrar er Íslandsmeistari U18 og U16, Fjölnir Íslandsmeistari U14-A. Tvö lið eru jöfn að stigum í Íslandsmóti U14-B og verður því enginn krýndur Íslandsmeistari í þeim flokki þetta tímabilið.

Stjórn og skrifstofa ÍHÍ vill að lokum þakka aðildarfélögum sínum innilega fyrir tímabilið í þessum fordæmalausu aðstæðum.

Undirbúningur fyrir næsta tímabil er hafinn og stefnum við á formannafund um leið og aðstæður leyfa, eða vonandi í byrjun mai 2020. Á formannafundinum munum við fara yfir landslagið og stilla saman strengi fyrir komandi tímabil.