Íshokkímaður ársins 2023 - Gunnar Aðalgeir Arason

Gunnar Aðalgeir Arason - Íshokkímaður ársins 2023
Gunnar Aðalgeir Arason - Íshokkímaður ársins 2023

Stjórn Íshokkísambands Íslands hittist nú á dögunum og valdi Gunnar Aðalgeir Arason sem íshokkímann ársins.  Gunnar er uppalin hjá og spilað með Skautafélagi Akureyrar þegar hann hefur verið spilandi hér á landi. 

Tímabilin 2018 - 2019 og 2019 - 2020 spilaði hann í Ontario í Kanada fyrir A21 í bæði North American Prep Hockey League og Canadian High School Hockey.  Hann staldraði stutt við í Nyköpings Sports Klub í Svíþjóð covid-tímabilið 2020 - 2021 en hann kom heim til Íslands þegar öllum íþróttum var að mestu lokað í Evrópu.  Tímabilin 2021 - 2022 og 2022 - 2023 spilaði hann á Íslandi með Skautafélagi Akureyrar og skoraði 21 og 29 stig þau tímabil.  Í dag hefur hann spilað með Osby IK í þriðju deild í Svíþjóð.

Hann hefur einnig verið í öllum landsliðum Íslands, þ.e.a.s U18, U20 og A-landsliði karla.  Hann byrjaði sinn landsliðsferil með U18 landsliði Íslands tímabilið 2016 - 2017 þá rétt 16 ára gamall og hefur spilað stórt hlutverk í vörn landsliðsins undan farin misseri.

Hægt er að sjá leikmannaferil Gunnars á vefsíðu Elite Prospects