Íshokkíkona ársins 2023 - Herborg Rut Geirsdóttir

Herborg Rut Geirsdóttir - Íshokkíkona ársins 2023
Herborg Rut Geirsdóttir - Íshokkíkona ársins 2023

Stjórn Íshokkísambands Íslands hittist nú á dögunum og valdi Herborgu Rut Geirsdóttur sem íshokkíkonu ársins.  Herborg byrjaði sinn íshokkíferil hjá Skautafélagi Akureyrar ung að árum en fluttist til Noregs ásamt foreldrum sínum.   Í Noregi spilaði hún með Spartak Warriors Sarpsborg árin 2014 - 2019.  Tímabilið 2019-2020 og 2020 - 2021 spilaði hún með Troja-Ljungby í fyrstu deild kvenna í Svíþjóð.  Covid-tímabilið 2021 - 2022 kom hún til Íslands og spilaði þá með Fjölni í Hertz-deild kvenna.  Íshokkítímabilið þar á efitr, 2022 - 2023, færði hún sig til Skautafélags Akureyrar og spilaði með þeim í Hertz-deild kvenna og Úrslitakeppni kvenna þar sem hún var með stigahæðstu leikmönnum liðsins.  Í dag spilar hún með fyrstu deildar kvennaliði Rögle í Svíþjóð.

Herborg byrjaði sinn landsliðsferil með A-landsliði kvenna árið tímabilið 2016 - 2017 og hefur verið fastaleikmaður í því liði síðan og keppt bæði á Heimsmeistaramótum IIHF og Undankeppni Ólympíuleikanna fyrir Íslands hönd.

Hægt er að lesa nánar um leikmannaferil Herborgar á Elite Prospects