Undanfarið hafa orðið nokkur atvik í leikjum Toppdeildar karla þar sem leikmenn hafa orðið fyrir höfuðáverkum og, meðal annars, fengið heilahristing. Þetta er þróun sem við verðum að taka alvarlega og gefur tilefni til að staldra aðeins við og ræða hvernig við viljum hafa íþróttina okkar.
Íshokkí er hröð, hörð og líkamleg íþrótt. Tæklingar, návígi og líkamleg barátta er hluti af leiknum og verður það áfram. En það er grundvallarmunur á löglegri tæklingu og hættulegri ákeyrslu sem getur leitt til alvarlegra meiðsla eins og t.d heilahristings eða annarra slíkra meiðsla. Það má aldrei verða þannig að höfuðákeyrslur séu einfaldlega afskrifaðar sem fylgifiskur leiksins.
Leikmenn bera ábyrgð á sínum tæklingum. Sá sem framkvæmir tæklingu verður að gera það innan ramma reglnanna, af yfirvegun og með öryggi andstæðingsins í huga. Það er ekki ásættanlegt að stefna andstæðingi í óþarfa hættu með því að beina tæklingu að höfði eða hálsi eða framkvæma hana með þeim hætti að hún verði sérstaklega hættuleg og valdi andstæðingnum meiriháttar skaða.
Á sama tíma verða leikmenn að gera sér grein fyrir eðli íþróttarinnar og vera undir það búnir að mæta líkamlegri snertingu. Það er hluti af íshokkí að gefa og taka við tæklingum. Leikmenn þurfa að læra og kunna að staðsetja sig, verja sig og bregðast rétt við þegar þeir fara í návígi. Það þýðir þó aldrei að sá sem verður fyrir ólöglegri eða hættulegri tæklingu beri ábyrgð á þeim áverkum sem kunna að hljótast af henni.
Ábyrgð þjálfara er ekki síður mikilvæg. Þjálfarar þurfa að leggja skýra áherslu á að leikmenn spili innan ramma reglnanna, virði andstæðinga sína og kunni bæði að gefa og taka á móti tæklingum. Það þarf að þjálfa líkamlega baráttu með réttum hætti og kenna leikmönnum að spila af hörku án þess að stofna andstæðingnum í óþarfa hættu. Það þarf einnig að vera skýr skilaboð frá þjálfurum um að hættulegur leikstíll og ólöglegar ákeyrslur séu ekki hluti af þeirri hegðun sem við viljum sjá á ísnum.
Dómarar og aganefnd bera síðan lykilábyrgð á því að reglurnar séu virtar og þeim framfylgt. Dómarar verða að taka höfuðákeyrslur og hættulegar tæklingar föstum tökum á meðan leik stendur. Það þarf að bregðast við með skýrum hætti þegar farið er yfir mörkin, ekki aðeins til að vernda þann leikmann sem verður fyrir brotinu heldur einnig til að koma í veg fyrir að slík hegðun verði viðtekin í íþróttinni.
Aganefnd þarf sömuleiðis að tryggja að agaviðurlög endurspegli alvarleika brotanna. Það má ekki vera þannig að leikmaður geti endurtekið farið í hættulegar tæklingar eða höfuðákeyrslur án þess að það hafi raunverulegar afleiðingar fyrir þann brotlega.
Við verðum að horfast í augu við stöðuna. Það er ekki eðlilegt að við séum á hverjum tíma með þrjá til fjóra leikmenn frá keppni og jafnvel vinnu vegna heilahristings sem þeir hafa hlotið í íshokkíleikjum. Það er alvarlegt fyrir einstaklingana sjálfa, félögin og íþróttina í heild. Heilahristingur er ekki smávægileg meiðsli sem hægt er að hrista eða sitja af sér á nokkrum dögum. Afleiðingarnar geta verið langvarandi, í sumum tilfellum varanlegar, og því verðum við að gera allt sem í okkar valdi stendur til að fækka ákeyrslum á höfuð eða háls.
Markmiðið er ekki að taka hörkuna úr íshokkí. Markmiðið er að tryggja að við getum áfram spilað hraðan, líkamlegan og skemmtilegan leik án þess að öryggi leikmanna sé sett í hættu.
Við þurfum sameiginlega að senda skýr skilaboð: Það á að vera leyfilegt að spila af hörku, en það er aldrei ásættanlegt að spila af ábyrgðarleysi. Höfuð og háls verða að njóta sérstakrar verndar og hættuleg brot verða að hafa afleiðingar.
Við berum öll ábyrgð á framtíð íþróttarinnar. Sú ábyrgð byrjar á ísnum, en hún endar ekki þar.