Félagaskipti fyrir SR

Stjórn sambandsins fékk ósk um undanþágu fyrir félagaskiptum fyrir Axel Loga Andrason sem leikið hefur með Fjölni yfir til Skautafélags Reykjavíkur. Undanþágubeiðnin er þannig til komin að um síðustu mánaðarmót lokaði félagaskiptaglugginn fyrir félagaskipti innanlands. Eina leiðin til þess að félagaskiptin gætu gengið eftir var að sækja um undanþágu til stjórnar ÍHÍ. Eftir að hafa skoðað málið og rætt ákvað stjórn sambandsins að fallast á þau rök sem lögð voru fram af SR og foreldrum piltsins fyrir undanþágunni, og var hún samþykkt samhljóða. SR greiddi félagaskiptagjald fyrir leikmanninn og í kjölfarið var óskað eftir staðfestingu á skuldleysi frá fyrra félagi og barst sú staðfesting í dag. 

Axel Logi Andrason er því löglegur leikmaður Skautafélags Reykjavíkur frá deginum í dag að telja.