Erindi frá Lyfjaeftirliti ÍSÍ

Lyfjaeftirlit ÍSÍ mun flytja okkur erindi um allt er viðkemur lyfjanotkun og notkun annarra efna sem óheimilt er að nota við íþróttaiðkun.

Fundurinn verður 22. febrúar og hefst kl 20:00, haldinn í fundarsal að Engavegi 6 (Íþrótta og Ólympíusambandið).

Allir íshokkí iðkenndur sem iðka íþróttina hér á landi heyra undir Lyfjaeftirlit ÍSÍ. Iðkenndur geta verið teknir í lyfjapróf hvar sem er og hvenær sem er, í eða utan keppni.

Lyfjaeftirlit ÍSÍ heyrir undir Alþjóðalyfjaeftirlitið (WADA) og hlítir reglum þess.

Íshokkísamband Íslands fordæmir alla notkun ólöglegra lyfja og vímuefna og nú er um að gera að fjölmenna á þennan fund og taka virkan þátt í honum.  Fundurinn verður allt í senn, formlegt kennsluefni og spjall meðal fundarmanna.  Hér er tækifæri fyrir alla í hreyfingunni að mæta og kynna sér málefni Lyfjaeftirlitsins.

Anti Doping Puck - IIHF - Ýta hér.