ÍHÍ stendur fyrir æfingabúðum fyrir U18 og U20 pilta, ásamt sérstökum markmannsæfingabúðum. Æfingarnar verða 14. til 16. maí 2026 í Laugardalnum. Blandað verður saman fræðslu og ísæfingum bæði kvölds og morgna. Ætlunin er að nesta vel leikmenn fyrir sumarleyfi.
Robin Danielsson markmannsþjáfari mun sjá um markmanns hlutann með Gulla. Gauti og Gulli ásamt aðstoðarfólki um ísæfingar leikmanna. Jóhann Páll styrktarþjálfari mun nesta menn fyrir sumarið og Ólafur Stefánsson handboltakappi mun verða með fyrirlestur fyrir hópinn. Ásamt ýmsu fleiru sem er að taka á sig mynd.
Dagskráin í grófum dráttum verður svona.
Fimmtudagur
Morgunæfingar.
Hádegismatur í íþróttmiðstöð.
Fyrirlestur frá Óla Stef
Síðdegisæfingar.
Föstudagur
Morgunæfingar
Hádegismatur í íþróttamiðstöð
Fræðsla TBD
Síðdegisæfingar
Laugardagur
Morgunæfingar
Æfingabúðum lýkur um hádegi.
Þjálfarar munu senda leikmönnum þátttökuboð og skráning verður í gegnum Abler. Kostnaður á hvern þátttakanda er 14.900 krónur og innifelur það matinn bæði fimmtudag og föstudag fyrirlestra og fleira.