📍 Akureyri | 30.–31. maí
Kvennalandsliðið býður aftur til æfingabúða á Akureyri fyrir allar stelpur á Íslandi á aldrinum U8–U18. Leikmenn landsliðs kvenna þjálfa og miðla af sinni reynslu – með það að markmiði að styðja við næstu kynslóð íshokkístelpna á Íslandi.
Um æfingabúðirnar:
✅ Þróunaræfingar með áherslu á tæknilega færni og leikskilning.
✅ Fræðsla um það hvað þarf til að ná árangri sem íþróttakona
✅ Aldursskipt hópastarf – hver og ein fær æfingar og fræðslu við sitt hæfi
✅ 2 ísæfingar, 1 leikur, afísæfingar og fræðsla
✅ Heitur matur á laugardegi
✅ Pizzuveisla í boði Greifans🍕
Skráningar hlekkur í Abler verður birtur eftir helgina.
Fyrir stelpur utan Akureyrar:
Leikmönnum sem koma utan Akureyrar fá aðstoð við að útvega heimagistingu hjá fjölskyldum á svæðinu ef þess er þörf en fyrsta æfing er á laugardag svo mögulegt er að gista í aðeins eina nótt.
Ef þörf er á aðstoð með far eða gistingu, vinsamlegast hafðu samband við:
Sigrún Agatha
Netfang: sagatha87@gmail.com
Sími: 8664694
Við hlökkum til að sjá sem flestar!