A-landslið karla heldur til Búlgaríu

Snemma í morgun lagði karlalandslið Íslands af stað til Búlgaríu til að taka þátt í Div2B á Heimsmeistaramóti karla í íshokkí.  Mótið fer fram á kunnulegum slóðum en mörg landslið Íslands hafa sótt mót til Búlgaríu á undanförnum áratugum og hægt að segja að við íslendingar séum flest öllum hnútum kunnugir á þeim slóðum.  Hægt verður að fylgjast með gangi liðsins á vef IIHF og einnig verður hægt að horfa á alla leiki mótsins á streymiveitu ÍHÍ á vefslóðinni icehockeyiceland.tv.

Mótherjar að þessu sinni eru landslið Ísraels, Nýja Sjálands, Kínverska Taipei, Kyrgistan og heimamenn, Búlgaría.

Þjálfarar liðsins völdu liðið nýverið og voru þeir með stuttar æfingabúðir í Egilshöll í gær, fimmtudaginn 2. apríl, og lögðu þeir af stað í morgun áleiðis til Sofiu í Búlgaríu.

Liðið skipa:

MARKMENN
Helgi Ívarsson
Róbert Steingrímsson

VARNARMENN
Arnar Helgi Kristjánsson
Atli Sveinsson
Gunnar Arason
Ormur Jónsson
Róbert Pálsson
Viktor Mojzyszek
Þorgils Eggertsson

SÓKNARMENN
Alex Máni Sveinsson
Andri Már Mikaelsson
Bjarmi Kristjánsson
Gunnlaugur þorsteinsson
Hákon Martein Magnússon
Heidar Gauti Jóhannsson
Hektor Hrólfsson
Jóhann Leifsson
Kári Arnarsson
Níels þór Hafsteinsson
Styrmir Maack
Ólafur Baldvin Björgvinsson
Unnar Hafberg Rúnarsson

STARFSMENN
Martin Struzinsky, Aðalþjálfari
Rúnar F. Rúnarsson, Aðstoðarþjálfari
Robin Danielsson, Markmanns - og Videoþjálfari
Marcin Mojzyszek, Tækjastjóri
Jóhann Þór Jónsson, Sjúkraþjálfari
Kristján Sturluson, Liðsstjóri