Úrskurður aganefndar 24. apríl 2026

Mál 1

Tekin er fyrir atvikaskýrsla dómara frá leik SA Jötna og SR  í Toppdeild Karla (B-hluta eða U22)  frá 11. apríl 2026. Nefndin hefur leikskýrslu leiks, atvikaskýrslu dómara og upptöku frá beinu streymi leiksins til þess að meta atvikið. 

Málsatvik:
Leikmaður SA nr 13 og leikmaður SR nr 3 eigast við á bak við mark SR, þegar SA er að reyna jafna leikinn og mjög lítið eftir. Leikmaður SA nr 13 missir pökkinn í návígi við leikmann SR nr 3. Leikmenn grípa í hvorn annan. Leikmaður SA nr kýlir leikmann SR nr 3 um 4-5 sinnum og leikmaður SR kýlir á móti 1-2 sinnum en hættir þegar dómarar stöðva slagsmál. Það gerir leikmaður SA nr 13 ekki.

Úrskurður:
Aganefnd er samstíga í að hegðun leikmannsins sé hegðun sem hreyfingin vill ekki sjá.  Leikmaður SA,  #13, Sölvi Sigurðarson Blöndal hlýtur 1 leik í bann. Bannið er alsherjarbann. 

Mál 2

Tekin er fyrir atvikaskýrsla dómara frá leik SA Jötna og SA Víkinga í Toppdeild Karla (B-hluta eða U22)  frá 16. apríl 2026. Nefndin hefur leikskýrslu leiks, atvikaskýrslu dómara og upptöku frá beinu streymi leiksins til þess að meta atvikið. 

Málsatvik:
Hópur leikmanna er að eigast við upp við rammann í Norð-vestur horni skautasvellsins á Akureyri. Þar á meðal eru leikmenn Jötna nr 16 og Víkinga nr 13. Dómari stöðvar leikinn á þá tekur leikmaður  Víkinga nr 13 á rás og skautar að leikmanni Jötna nr 16 og notar kylfu sína eins og baseball kylfu og slær til hans, sami leikmaðurinn fylgir eftir þessari atlögu sinni og keyrir með kylfu sinni aftan í háls og höfuð andstæðingsins sem allan tímann snéri í hann baki.  

Úrskurður:
Aganefnd er lýtur þetta atvik alvarlegum augum. Ekki er að sjá neitt í leiknum í aðdraganda atviksins sem skýrt getur þessi ofsafengnu viðbrögð leikmannsins. Þetta er hegðun sem hreyfingin getur ekki sætt sig við í neinum tilfellum. Nefndin ákvað að nýta sér nýfengna heimild til að taka mið af brotasögu leikmanna við ákvörðun refsingar. Leikmaður SA Víkinga #13, Sölvi Sigurðarson Blöndal, hlýtur 2 leiki í bann fyrir brotið og einn leik aukalega vegna brotasögu.  Samtals 3 leiki fyrir þetta atvik. Bannið er alsherjarbann.