Útbreiðsla.

Hugmyndir eru uppi um að stofna útbreiðslunefnd á vegum ÍHÍ. Nefndinni, er einsog nafnið gefur til kynna, ætlað að vinna að útbreiðslu íshokkí með ráðum og dáð. Áður en skipað verður í nefndina var ákveðið að auglýsa hér eftir áhugasömum einstaklingum með góðar hugmyndir og hvaðeina annað sem gæti komið að gagni. Þeir sem hafa áhuga á málefninu og að starfa í nefndinni eru beðnir að hafa samband Hallmund annaðhvort með tölvupósti á ihi@ihi.is eða í síma 822-5338. 

Mynd: Kristján Maack


HH