Úrskurður Aganefndar 21.10.11

Tekin er fyrir atvikaskýrsla úr leik Bjarnarins og  Húnanna í meistara flokki karla sem leikinn var þann 18.10.2011.

Leikmaður Bjarnarins nr. 92 Ólafur Hrafn Björnsson hlaut 5 mín + brottvísun úr leik. (GM) fyrir Slashing.

Úrskurður: Brotið færist til bókar og við aðra brottvísun úr leik fer leikmaðurinn sjálfkrafa í eins leiks bann.

Leikmaður Húnanna nr. 68 Viktor Örn Svavarsson hlaut brottvísun úr leik. (GM) fyrir að vera þriðji maður inn í slagsmál.

Úrskurður: Brotið færist til bókar og við aðra brottvísun úr leik fer leikmaðurinn sjálfkrafa í eins leiks bann.

Leikmaður Húnanna nr. 10 Ingi Thor Hafdisarson hlaut leikdóm. (MP) fyrir að hefja slagsmál.

Úrskurður: Leikmaðurinn hlýtur sjálfkrafa einn leik í bann. Um allsherjarbann er að ræða.

Vísað er til bókunar frá aganefndarfundi þ. 11-11.2008 þar sem m.a. segir: Leikmenn sem eru að taka út refsingar í einum aldursflokki geta ekki leikið með öðrum aldursflokkum á meðan þeir eru að taka út leikbann sitt. Leikmenn geta þó aldrei tekið út fleiri leiki í bann í öðrum flokkum en sem nemur þeim leikjum sem fékkst fyrir frumbrotið.

Á þetta við hvort sem leikmenn hljóta leikdóm (Match Penalty (MP)) eða safna tveimur brottvísunum úr leik (Game Misconduct (GM)).

f.h Aganenfdar
Stefán Örn Þórisson