SR - SA úrslit.

Í kvöld fór fram fyrri leikur SR og SA í öðrum flokki karla. Leiknum lauk með því að bæði lið gerðu 7 mörk og þar sem um leik í öðrum flokki er að ræða var ekki framlengt og liðið skipta með sér stigunum. Þess má geta að SA menn jöfnuðu leikinn þegar ein sekúnda lifði leiks. Það þýðir að leikurinn annað kvöld er ekki síður mikilvægur heldur en sá sem var í kvöld enda allt opið ennþá. Leikurinn bauð uppá skemmtilega takta og falleg mörk þó einstaka leikmenn mættu athuga að dómarinn er ekki miðdepill leiksins og þeir ættu að einbeita sér meira í að spila en að tuða.

Mörk/stoðsendingar SR:

Ragnar Kristjánsson 2/0
Pétur Maack 2/0
Egill Þormóðsson 1/1
Tómas T. Ómarsson 1/1
Andri Þór Guðlaugsson 1/1
Þorsteinn Björnsson 0/2
Sindri Gunnarsson 0/1

Mörk/stoðsendingar SA:

Orri Blöndal 2/0
Andri Sverrisson 2/0
Andri M. Mikaelsson 1/1
Sigurður Óli Árnason 1/0
Árni Jónsson 1/0
Jóhann Leifsson 0/2

HH