SR - Björninn 2. fl.

Í kvöld fer fram í Laugardalnum leikur Skautafélags Reykjavíkur og Bjarnarins í 2. flokki karla og hefst leikurinn klukkan 21.00. SR-ingar hafa farið mikinn í þessum flokki það sem af er vetrar og því markmið annarra liða að vinna þá. Það sem gerir leikinn enn meira athyglisverðan að í báðum liðum eru leikmenn sem eru á leiðinni með U18 ára landsliðinu til Tyrklands en ferðaáætlun drengjanna leit eimitt dagsins ljós í dag. 

Myndina tók Ómar Þór Edvarsson

HH