Slóð dagsins.

Í slóð dagsins byrjum við á því að óskar Bjarnarmönnum til hamingju með nýja heimasíðu sem þeir eru að fara í loftið með. Önnur heimasíða sem við viljum benda á hefur kanski ekki mikið með hokkí að gera en þess meira með hokkímann að gera. Það er síða Rúnars Freys Rúnarssonar sem spilaði hokkí bæði með SR og SA og var einnig í landsliði Íslands til margra ára. Rúnar hefur í bili snúið sér að tónlistinni og er u.þ.b. að fara að gefa út efni en þess má geta að Rúnar Freyr gekk lengi undir nafninu "Lurkurinn". Markmaður fær svo vídeóhorn dagsins enda sér maður ekki svona á hverjum degi. Þess má geta að slóð dagsins birtist ekki á hverjum degi en þess duglegri sem menn eru að senda mér hugmyndir að efni þess meiri líkur á slóð. Svo endilega sendið á ihi@ihi.is

HH