SA - Björninn mfl. kvk.

Skautafélag Akureyrar tryggði sér um helgina íslandsmeistaratitilinn í íshokkí kvenna með því að vinna sigur á Birninum. SA dugði að ná einu stigi úr þeim tveimur leikjum sem liðin léku um helgina og strax í fyrri leiknum náðu SA-stúlkur að landa sigri, unnu með 5 mörkum gegn 4. Síðari leikurinn endaði 4 - 3 SA-stúlkum í vil. Við óskum þeim að sjálfsögðu til hamingju með titilinn og fjöllum nánar um leikina á morgun.

Sigurgeir Haraldsson tók myndina.

HH