Mikil viðurkenning fyrir Ísland.

Framkvæmdastjórn Alþjóða Íshokkísambandsins IIHF hefur tilnefnt Viðar Garðarsson formann ÍHÍ í svokallaða Structure Committee sem hefur það hlutverk að endurskoða allt mótahald á vegum IIHF. Þessi tilnefning er mikill heiður fyrir okkur íslendinga og góð viðurkenning á störfum okkar hér heima og á vetvangi Alþjóða íshokkísambandsins. Framkvæmdastjórn IIHF tilnefndi þessa aðila í nefndina.

Shoichi Tomita varaforseti IIHF og formaður nefndarinnar.

René Fasel forseti IIHF.

Kalervo Kummola varaforseti IIHF og formaður Finnska sambandsins.

Frank Gonzalez situr í framkvæmdastjórn IIHF og formaður Junior Committee IIHF.

Bob Nicholson formaður Kanadíska íshokkísambandsins fulltrúi liða í úrvals deild.

Ferenc Studniczky formaður Ungverska íshokkísambandsins fulltrúi liða í fyrstu deild.

Viðar Garðarsson formaður Íslenska íshokkísambandsins fulltrúi liða í neðri deildum.

Jan-Ake Edvinsson framkvæmdastjóri IIHF.

Dave Fitzpatrick Sport director IIHF og framkvæmdastjóri nefndarinnar.

Kimmo Leinonen Markaðsstjóri IIHF.

Johanna May ritari nefndarinnar.