Leikur kvöldsins frh.

Nú er í gangi síðasta heflun fyrir 3 leik í úrslitum íslandsmótsins milli SA Víkinga og SR. Eins og fram kom í síðustu frétt verður leikurinn sýndur í beinni útsendingu bæði í sjónvarpinu og á netinu á sjónvarpsstöðinni N4. Einnig verður bein textalýsing hér á síðunni hjá okkur undir "Tölfræði KK" þannig að áhugamenn um leikinn ættu allavega að hafa ýmsa möguleika á að fylgast með viðureigninni.