Leikur helgarinnar.

Um þessa helgina eigast við lið Bjarnarins og Skautafélags Akureyrar. Leikurinn fer fram á morgun, þ.e. á laugardag, og er í Egilshöll og hefst klukkan 19.00. Þegar liðin mættust í Aseta-mótinu um síðasliðna helgi skildu þau jöfn, þ.e. bæði lið skoruðu tvö mörk. Bjarnarmenn unnu í framhaldinu vítakeppnina og höfðu því með sér aukastigið úr leiknum. Ekki er enn vitað hvort Tomas Fiala leikmaður norðanmanna verði komin með leikheimild fyrir leikinn en það ætti að koma í ljós síðar í dag. Sjáumst í Egilshöllinni klukkan 19.00 á morgun (laugardag).

Myndina tók Ólafur Ragnar Ósvaldsson

HH