Leikir helgarinnar.

Um helgina fara Bjarnamenn uppí rútuna og halda norður yfir heiðar. Bæði er um að ræða leik í meistaraflokki karla en einnig leika strákarnir úr 3ja flokk sömu liða. Leikurinn í meistaraflokki hefst klukkan 17.00 en leikur 3ja flokks klukkan 20.00. Síðast þegar þessi meistaraflokksliðin mættust á Akureyri náðu Bjarnarmenn lengi vel að standa í norðanmönnum þrátt fyrir að mæta til leiks með frekar vængbrotið lið. Leikurinn um helgina gæti því orðið spennandi og vonandi fjölmenna áhorfendur rétt einsog í síðasta leika SA-manna.