Leikir helgarinnar ásamt fleiru.

Á meðan ferð U18 liðsins til Peking í Kína stóð var rólegt hér á heimavígstöðvunum. Um helgina hefst keppni aftur og að þessu sinni eru það 2. og 3. flokkur SR sem heldur norður yfir heiðar til keppni við SA-menn. Í öðrum flokknum hefst leikurinn á laugardag klukkan 18.00 og leikur þriðja flokkst strax á eftir og á sunnudeginum hefjast menn handa klukkan 11.10.

Við fengum sendan hingað á ÍHÍ póst frá  manni í Kanada sem málar íshokkíhjálma. Ekkert kom nú fram í póstinum hvað slíkt kostaði en ég ákvað að leyfa mönnum að sjá sýnishorn af því sem væri í boði.

HH