Kvennalandslið leikur styrktarleik á Akureyri á laugardag.

Fyrsta kvennalandslið Íslands leikur á Akureyri á morgun laugardag klukkan 18:30 á móti Gulldrengjum norðanmanna.  Leikurinn er allt í senn fjáröflun fyrir kvennaliðið og líka partur af æfingaáætlun þeirra fyrir þátttöku á heimsmeistaramóti kvenna, en liðið heldur til Nýja sjálands 29 mars næstkomandi.