Íþróttaslys og lyfjamál.

Við hérna sem skrifum mest á þessa síðu þiggjum allar ábendingar um efni sem iðkendur og annað hokkífólk þarf á að halda. Vakin var athygli okkar á að gott væri að safna saman þvi helsta um réttindi og skyldur vegna íþróttaslysa og lyfjamála.  Þessi frétt verður því einnig vistuð undir "Allt annað!" en þar munum við í framtíðinni safna saman upplýsingum um ýmislegt sem getur komið að gagni.


Þeir sem stunda íþróttir á vegum sérsambanda ÍSÍ njóta ýmsissa réttinda þegar kemur að slysum sem þeir verða fyrir hvort sem um er að ræða æfingar eða keppni. Í þessum bæklingi hér má finna allar helstu upplýsingar um þegar íþróttaslys ber að höndum. Einnig má hér finna reglugerð um greiðslu bóta vegna íþróttaslysa og ef sækja þarf má finna eyðublað um það hérna.

Í upphafi tímabils viljum við benda mönnum á að lesa vel yfir listann frá WADA með þar sem talin eru upp þau lyf sem bannað er að nota annarsvegar og hinsvegar þau lyf sem eftirlit er haft með notkun á. Listanna má finna á þessari síðu.

Hitt, sem er ekki síður mikilvægt, er að þeir leikmenn sem nota þurfa lyf samkvæmt læknisráði verða að sækja um undanþágu til lyfjaeftirlitsins. Á þessari síðu hjá lyfjaeftirlitinu má finna umsóknareyðublöðin.

Ef þið eruð í einhverjum vandræðum með þetta þá hikið ekki við að hafa samband við hann Örvar Ólafsson sem sér um þessi mál en bæði er hægt að hringja í 514-4000 eða senda honum tölvupóst á orvar@isi.is.

HH

Og ef þið lendið í lyfjaeftirliti þá fer það svona fram.