Ísland - Serbía.

Nú fer að styttast í að leikur Íslands og Serbíu hefjist á heimsmeistaramótinu í Tyrkland. Að sjálfsögðu munu allir almennilegir hokkíáhuamenn fylgjast með gangi leiksins á netinu. Ég fékk póst frá Omma tækjastjóra og hann sagði að Serbarnir væru harðir í hörn að taka og spiluðu mjög fast. Okkar menn væru hinsvegar liprari á skautunum og hraðari í leik sínum. Við vonum bara að það dugi. Leikurinn hefst klukkan 13.30 að íslenskum tíma og textalýsing er hér.

HH