Ísland -Serbía úrslit.

Íslenska landsliðið í ishokkí skipað leikmönnum 18 ára og yngri lék í dag sinn annan leik á heimsmeistaramótinu í 3. deild sem fram fer í Izmit í Tyrklandi. Að þessu sinni var leikið gegn liði Serba og beið íslenska liðið lægri hlut en Serbar gerðu 4 mörk gegn engu marki okkar manna. Lotur fóru 0 - 1, 0 - 1 og 0 - 2. Næsti leikur íslenska liðsins er gegn búlgörum og hefst leikurinn klukkan 17.00 að íslenskum tíma. Helstu tíðindi úr leiknum má sjá hér.

HH