Helgin.

Liðin helgi var annasöm hjá okkur íshokkífólki. Eins og mátti sjá hérna á síðunni okkar unnu SR-ingar sigur á SA-mönnum með sex mörkum gegn þremur.

Brynjumótið fór fram um helgina og samkvæmt okkar heimildum var þar mikið fjör og mikið gaman. Eins og undanfarin ár er ekki talið í þessum leikjum og því engin úrslit að birta. Aðalmálið var að allir skemmtu sér vel.

Stjórn ÍHÍ hélt síðan langan og strangan vinnufund á laugardeginum. Farið var yfir ýmis mál s.s. fjármál, dómaramál, almenna stefnu ÍHÍ og margt margt fleira. Einnig voru samþykktar tvær nýjar reglugerðir sem birtar verða hér á síðunni innan skamms. 

Myndina tók Kristján Maack á Brynjumótinu um síðastliðna helgi.

HH