Frí frá skólasókn.

Nú er farið að styttast í ferðina og undirbúningur því kominn á full skrið. Sækja þarf um frí í skóla fyrir þá leikmenn sem eru í skóla. ÍHÍ sér um það en til að það sé hægt þarf að senda okkur eftirfarandi upplýsingar:

- Nafn leikmanns.
- Kt. leikmanns.
- Nafn og tölvupóstfang þess í skólanum sem tekur við beiðnum sem þessum. 

Ferðaáætlun fyrir aðalhóp hefur verið birt og nú á næstu dögum fara að birtast frekari fregnir varðandi ferðalagið.

HH