2fl. SR - SA úrslit síðari leikur.

Seinni leikur Skautafélags Reykjavíkur og Skautafélags Akureyrar fór fram í gærkvöldi og rétt einsog kvöldið áður lauk leiknum með jafntefli, bæði lið skoruðu þrjú mörk. Þetta er þriðja jafnteflið sem þessi lið gera í vetur og bendir til þess að getan hjá þeim sé æði jöfn. Leikurinn var skemmtilegur á að horfa, leikmenn einbeittur sér að því að spila íshokkí og mikill hraði og barátta var í honum. Lotur fóru 1 - 1, 0 - 0, 2 - 2. SA-drengir hafa nú lokið leik í þessum aldursflokki en SR-ingar eiga eftir tvö leiki við Björninn sem leiknir verða eftir úrslitakeppni meistaraflokks karla.

Mörk/stoðsendingar SR:

Styrmir Friðriksson 1/1
Egill Þormóðsson 1/0
Björn Sigurðsson 1/0
Pétur Maack 0/1

Mörk/stoðsendingar SA:

Orri Blöndal 2/0
Gunnar Darr Sigurðsson 1/0
Jóhann Leifsson 0/1

HH