2. leikur í úrslitakeppni kvenna.

Í kvöld fer fram 2. leikur í úrslitakeppni íslandsmótsins í íshokkí kvenna. Það eru SA - Björninn sem mætast og hefst leikurinn klukkan 19.15 og er í skautahöllinni á Akureyri.

Ekki kæmi á óvart að leikurinn yrði spennandi og skemmtilegur þvi fyrsti leikur liðanna sem fram fór í Egilshöll á sunnudag endaði með framlengingu og vítakeppni. Bjarnarstelpur höfðu á endanum sigur með 4 mörkum gegn 2 og náðu því forystu í einvíginu. Með sigri í kvöld eiga þær því möguleika á að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn. SA-stúlkur munu hinsvegar láta þær hafa fyrir hlutunum og berjast til síðasta blóðdropa.

Það er því ástæða fyrir alla sem hafa tækifæri til að láta sjá í höllinni fyrir norðan í kvöld.

Myndina tók Sigurgeir Haraldsson.

HH