Víkingar - SR umfjöllun

Víkingar - SR umfjöllun Víkingar og Skautafélag Reykjavíkur áttust viđ á íslandsmótinu í gćrkvöld og fór leikurinn fram á Akureyri. Leiknum lauk međ sigri

Víkingar - SR umfjöllun

Úr leik gćrkvöldsins                                                                                                          Mynd: Sigurgeir Haraldsson

Víkingar og Skautafélag Reykjavíkur áttust viđ á íslandsmótinu í gćrkvöld og fór leikurinn fram á Akureyri. Leiknum lauk međ sigri SR-inga sem gerđu 4 mörk gegn einu marki Víkinga. Eins og áđur hefur komiđ fram er keppnin um sćti í úrslitakeppninni geypilega hörđ ađ ţessu sinni og hvert einasta stig skiptir máli.

Nokkuđ jafnrćđi var međ liđunum í fyrstu lotu og skiptust ţau á ađ sćkja. Lengi vel var lotan markalaus en ţegar um fimm mínútur lifđu af henni, nýttu SR-ingar sér ađ vera einum fleiri á ísnum en markiđ gerđi Arnţór Bjarnason. Stađan ţví 0 - 1 eftir fyrstu lotu og leikurinn galopinn.

Í annarri lotunni juku SR-ingar sóknarţungann og uppskáru tvö  mörk. Arnţór Bjarnason var aftur á ferđinni í fyrra skiptiđ en síđara markiđ átti Björn Róbert Sigurđarson. Bćđi mörkin komu eftir ađ SR-ingar nýttu sér ađ hafa liđsmun á ísnum.  Stađa SR-inga ţví orđin nokkuđ vćnleg en Rúnar F. Rúnarsson kom Víkingum inn í leikinn međ laglegu marki skömmu síđar. Stađan eftir ađra lotu ţví 1 – 3 og leikurinn enn galopinn.

Einungis eitt mark var ţví skorađ í ţriđju lotunni og ţar var á ferđinni Pétur Maack fyrir SR-inga og kom markiđ skömmu fyrir leikslok.

Baráttan um sćti í úrslitum mun ţví  halda áfram frameftir mánuđinum en nćsti leikur í meistaraflokki karla er leikur SR og Bjarnarins og fer hann fram nćstkomandi ţriđjudag.

Mörk/stođsendingar Víkingar:

Rúnar F. Rúnarsson 1/0

Refsingar Víkingar: 34 mínútur

Mörk/stođsendingar SR:

Arnţór Bjarnason 2/0
Björn Róbert Sigurđarson 1/0
Pétur Maack 1/0
Steinar Páll Veigarsson 0/2
Daniel Kolar 0/1
Robbie Sigurdsson 0/1
Svavar Steinsen 0/1
Gauti Ţormóđsson 0/1

Refsingar SR: 12 mínútur

HH


Svćđi

Íshokkísamband Íslands

Engjavegi 6
104 Reykjavík
Sími. +354 514 4075
kt. 560895-2329
ihi@ihi.is

Viltu ćfa íshokkí?

Skautafélögin eru flest međ skautaskóla fyrir yngstu krakkana ţar sem ţau byrja á ađ lćra ađ ná tökum á ađ skauta.

Viltu vita meira? Smelltu hér »

Póstlisti