Lyfjaeftirlit

Þeir sem stunda íþróttir á vegum sérsambanda ÍSÍ njóta ýmissa réttinda þegar kemur að slysum sem þeir verða fyrir hvort sem um er að ræða æfingar eða

Lyfjaeftirlit

Þeir sem stunda íþróttir á vegum sérsambanda ÍSÍ njóta ýmissa réttinda þegar kemur að slysum sem þeir verða fyrir hvort sem um er að ræða æfingar eða keppni. Í þessum bæklingi hér má finna allar helstu upplýsingar um þegar íþróttaslys ber að höndum. Einnig má finna reglugerð um greiðslu bóta vegna íþróttaslysa á vef ÍSÍ og einnig ef sækja þarf eyðublað vegna þess.

Í upphafi tímabils viljum við benda mönnum á að lesa vel yfir listann frá WADA með þar sem talin eru upp þau lyf sem bannað er að nota annarsvegar og hinsvegar þau lyf sem eftirlit er haft með notkun á. Listanna má finna á þessari síðu.

Hitt, sem er ekki síður mikilvægt, er að þeir leikmenn sem nota þurfa lyf samkvæmt læknisráði verða að sækja um undanþágu til lyfjaeftirlitsins. Á þessari síðu hjá lyfjaeftirlitinu má finna umsóknareyðublöðin.

Ef þið eruð í einhverjum vandræðum með þetta þá hikið ekki við að hafa samband við hann Örvar Ólafsson sem sér um þessi mál en bæði er hægt að hringja í 514-4000 eða senda honum tölvupóst á orvar@isi.is.

Og ef þið lendið í lyfjaeftirliti þá fer það svona fram.

Svæði

Íshokkísamband Íslands

Engjavegi 6
104 Reykjavík
Sími. +354 514 4075
kt. 560895-2329
ihi@ihi.is

Viltu æfa íshokkí?

Skautafélögin eru flest með skautaskóla fyrir yngstu krakkana þar sem þau byrja á að læra að ná tökum á að skauta.

Viltu vita meira? Smelltu hér »

Póstlisti