SR - Björninn umfjöllun

SR - Björninn umfjöllun Skautafélag Reykjavíkur og Björninn léku í meistaraflokki kvenna á íslandsmótinu í íshokkí og fór leikurinn fram í Laugardalnum.

SR - Björninn umfjöllun




Frá leik liđanna í gćrkvöld                                                                Mynd: Bryndís Ingibjörg Björnsdóttir

Skautafélag Reykjavíkur og Björninn léku í meistaraflokki  kvenna á íslandsmótinu í íshokkí og fór leikurinn fram í Laugardalnum.  Leiknum lauk međ sigri Bjarnarstúlkna sem gerđu 7 mörk gegn 2 mörkum SR-kvenna. Hjá báđum liđum má sjá töluvert af nýjum nöfnum á leikmannalistum og eru sumar  ţeirra strax farin ađ láta ađ sér kveđaen bććđi liđ spiluđu á öllum sínum mannskap.

Bjarnarkonur hófu leikinn međ miklum látum og strax á fyrstu mínútunni kom Steinunn Erla Sigurgeirsdóttir ţeim yfir. Hanna Rut Heimisdóttir bćtti síđan viđ öđru marki á 9. mínútu leiksins. SR-konur náđu hinsvegar ađ minnka muninn rúmlega mínútu síđar og ţar var á ferđinni Stefanía Kristín. Stađan ţví 1 – 2 eftir fyrstu lotu.

Í annarri lotu bćttu Bjarnarkonur viđ tveimur mörkum án ţess ađ SR-konum nćđu ađ svara fyrir sig. Bćđi mörkin átti Flosrún Vaka Jóhannesdóttir  og stađan ţví 1 – 4 Bjarnarkonum í vil eftir ađra lotu.

Bjarnarkonur áttu fyrsta markiđ í 3ju lotu en ţar var á ferđinni Lilja María Sigfúsdóttir. SR-konur náđu hinsvegar ađ svara fyrir sig međ marki frá Hörpu Dögg Kjartansdóttir. Síđustu tvö mörkin áttu gestirnir og aftur var ţađ Flosrún Vaka sem skorađi.

Mörk/stođsendingar SR:

Stefanía Kristín 1/0
Harpa Dögg Kjartansdóttir 1/0
Hákon Orri Árnason 0/1

Refsingar SR: 14 mínútur

Mörk/stođsendingar Björninn:

Flosrún Vaka Jóhannesdóttir 4/2
Steinunn Erla Sigurgeirsdóttir 1/3
Lilja María Sigfúsdóttir 1/2
Hanna Rut Heimisdóttir 1/1
Sigríđur Finnbogadóttir 0/1

Refsingar Björninn: 16 mínútur.


Svćđi

Íshokkísamband Íslands

Engjavegi 6
104 Reykjavík
Sími. +354 514 4075
kt. 560895-2329
ihi@ihi.is

Viltu ćfa íshokkí?

Skautafélögin eru flest međ skautaskóla fyrir yngstu krakkana ţar sem ţau byrja á ađ lćra ađ ná tökum á ađ skauta.

Viltu vita meira? Smelltu hér »

Póstlisti