
Frá leik Ynja og Ásynja Mynd: Elvar Freyr Pálsson
Nú fer ađ sjá fyrir endann á deildarkeppni í meistaraflokkum karla og kvenna. Í karlaflokknum eru eftir ţrír leikir en í kvennaflokknum eru eftir tveir leikir. Leikir kvöldsins eru tveir og eru ţeir í sitthvorum flokknum.
Í Skautahöllinni í Laugardal mćtast klukkan 20.15 Skautafélag Reykjavíkur og Húnarnir. Stađan í deildinni er nokkuđ ljós hvađ SR-inga varđar ţví ţeir hafa bćđi tryggt sér sćti í úrslitum og deildarmeistaratitilinn. Húnarnir eiga leikinn gegn SR eftir en einnig leik gegn Víkingum sem fram fer hinn 3. mars. Sá leikur gćti orđiđ ađ úrslitaviđureign um hvort Björninn eđa Víkingar fara í úrslit en ţó veltur ţađ á úrslitunum í leik SR og Víkinga nk. föstudag.
Í Skautahöllinni á Akureyri mćtast klukkan 20.30 liđ Ásynja og Ynja. Ţetta er síđasti leikur Ynja og međ sigri geta ţćr náđ Ásynjum ađ ađ stigum. Ásynjur eiga hinsvegar leik til góđa gegn SR um nćstu helgi ţar sem ţrjú stig verđa í bođi. Ásynjur hafa einungis tapađ einum leik á ţessu tímabili en ţađ var gegn Birninum fyrir stuttu.
HH

Engjavegi 6