Hokkíhelgi

Það er að renna upp góð og mikil hokkíhelgi og að þessu sinni er hún á Akureyri. Ef við teljum okkur niður í flokkum þá ber fyrst að nefna leik Skautfélags Akureyrar og Skautafélags Reykjavíkur í mfl karla en sá leikur hefst klukkan 17.05 á laugardeginum. SR-ingar unnu í vikunni nokkuð afgerandi sigur á Bjarnarmönnum 7 - 3. SA-menn áttu hinsvegar í smá strögli með Bjarnarliðið um síðastliðna helgi en sá leikur endaði eins og menn vita 4 – 2. Það er því nokkur eftirvænting í gangi varðandi leikinn og ekki ólíklegt að hann verði spennandi fram á síðustu mínútu.

Klukkan 21.30 mun 3. flokkur sömu félaga leika og sjálfsagt ætla SR-ingar sér að hefna tapsins frá því í síðasta leik en hann unnu SA-menn nokkuð örugglega en leikurinn endaði 4 – 9.

Að lokum má geta þess að haldið verður bikarmót í 4. og 5. flokki. og sjá má dagskrá þess hér.