Dómaranámskeið ofl.

Einsog kemur fram hérna á síðunni hefur nýr yfirdómari verið skipaður en það er Ólafur Ragnar Ósvaldsson. Nóg er um starfa hjá Ólafi því nýverið stóð hann ásamt ÍHÍ fyrir dómaranámskeiði sem haldið var í Reykjavík. Ólafi Ragnar til aðstoðar á námskeiðinu var Jarmo Jalavro eftirlitsdómari hjá IIHF.

Næsta dómaranámskeið verður haldið á Akureyri um komandi helgi en þar verður ekki látið staðar numið því helgina á eftir verður aftur haldið námskeið og þá í Reykjavík. Dagskrá þess verður auglýst síðar.

Fyrrnefndur Jarmo kom með mikið af efni sem hægt verður að nýta í náinni framtíð. Efnið er bæði í ritmáli en einnig mikið af klippum úr leikjum sem dómaranefnd IIHF hefur farið yfir. Klippurnar verður vonandi hægt að nýta bæði fyrir starfandi dómara og leikmenn.

Í vikunni hélt Ólafur Ragnar einnig fund með leikmönnum í meistaraflokkum og 3. flokki Bjarnarins þar sem m.a. reglubreytingar voru ræddar en einnig var almennt farið yfir málin.

Myndina tók Jóhann Björn Ævarsson

HH