Breytingar á leikjaskrá

Gerð hefur verið breyting á mótaskrá. Leikur Narfans og Bjarnarins sem vera átti þann 4 mars nk. hefur verið færður til þriðjudagsins 26. febrúar. Sami tími er á leiknum og áður, þ.e. hann hefst klukkan 19.30 Einnig hefur leikur SA og Bjarnarins í mfl kvenna sem leika átti 9. febrúar, en fresta varð vegna ófærðar, verið fundinn nýr tími. Hann verður á Akureyri 29. febrúar og hefst klukkan 22.00. Leikjadagskrá hefur verið uppfærð á forsíðunni hjá okkur.

HH