Björninn - SR 2. flokkur.

Í kvöld fer fram síðasti leikur í 2. flokki karla á þessu tímabili. Í kvöld eigast við, einsog fram kemur í fyrirsögn, Björninn og Skautafélag Reykjavíkur og er leikurinn í Egilshöll og hefst klukkan 20.00. SR-ingar eru nú jafnir SA-drengjum að stigum fyrir þennan leik en SR-ingar hafa fjögur mörk á norðan drengi. SR-ingar munu því örugglega leggja sig alla fram um að landa sigri svo ekkert vafamál sé á hverjir taka titilinn. Ekki hafa mér borist fréttir af þvi hvort Ástralíufarar þeirra Bjarnarmanna komi til leiks í kvöld en það myndi óneitanlega styrkja lið þeirra frá síðasta leik gegn SR sem þeir töpuðu með 3 mörkum gegn 12. Nú fer hver að verða síðastur að sjá íshokkí þetta tímabilið þannig að um að gera að skella sér í Grafarvoginn.

HH