SA - Björninn 6 - 2 í 2. flokki.

Skautafélag Akureyrar tók á móti Birninum á Akureyri í kvöld í 2. flokki.  Björninn byrjaði betur og skoraði fyrstu tvö mörk leiksins en SA náði að minnka muninn í 2 - 1 skömmu fyrir lok 1. lotu.  2. lota var jöfn og hart barist á báða bóga en aðeins var eitt mark skorað og það voru heimamenn sem jöfnuðu.
 
SA var sterkari aðilinn í 2. lotu og skoraði 4 mörk gegn engu frá Birninum og lokastaðan því 6 - 2 SA vil.  Það er nú þegar orðið ljóst að það eru SA og SR sem berjast um íslandsmeistaratitilinn í 2. flokki.  SA hefur nú 16 stig á móti 13 stigum SR, en SR á 2 leiki til góða.  Úrslitin í þessum flokki munu því væntanlega ekki skýrast fyrr enn í allra síðustu leikjunum. Meðfylgjandi mynd tók Sigurgeir Haraldsson