Úrskurður Aganefndar 22.nóvember 2017

Tekin er fyrir atvikaskýrsla úr leik SR og Umfk Esju i meistaraflokki karla sem fram fór í Laugardal 17. nóvember 2017.

Fram kemur í atvikaskýrslu dómara að leikmaður SR #76 Patrik Lobl, hafi slegið til dómara og hefur sá framburður verið sannreyndur af Aganefnd.

Sem fyrr er Aganefnd algjörlega samstíga um að beita þá leikmenn sem á einhvern hátt vilja slá til dómara harðari refsingum en almennt er og tekur úrskurður Aganefndar mið af því.

Úrskurður: Patrik Lobl leikmaður Skautafélags Reykjavíkur er úrskurðaður eins leiks bann fyrir Match Penalty og að auki tveggja leikja bann, samtals þriggja leikja bann.


Fh. Aganefndar
Þórhallur Viðarsson, formaður