Stóra barna mótið - 5. 6. og 7. flokkur

Stóra barnamótið á Akureyri
Stóra barnamótið á Akureyri

Stóra barnamótið, 5. 6. og 7. flokkkur í íshokkí, fer fram í Skautahöllinni Akureyri nú um helgina. Þar munu iðkenndur úr öllum félögum landsins taka þátt í frábæru keppnis skapi og eigum við von á fjölmennu móti. Mótið hefst á laugardagsmorgun og lýkur um miðjan dag á sunnudag.  Leikjaplan helgarinnar má finna á heimasíðu Skautafélags Akureyrar, ÝTA HÉR.  Það má því teljast öruggt að það verði líf og fjör í Skautahöllinni um helgina og eru allir velkomnir.  Mót af þessu tagi styrkir og eflir andann og gefur leikmönnum færi á að kynnast hverjum öðrum og um leið bætir getu í íshokkí, skautatækni og kylfuleikni.  Kaffi verður á könnunni og örugglega hægt að næla sér eitthvað gott í gogginn í sjoppunni.  Sjáumst hress og kát :-) tökum með okkur góða skapið. Afar og ömmur, frænkur og frændur sérstaklega velkomnir.