SR fær SA í heimsókn í kvöld kl.19:45

Á síðasta ári náði SR að tryggja sér deildarmeistaratitilinn á síðustu metrunum í deildarkeppninni.  SA stóð uppi sem Íslandsmeistari eftir hörku spennandi úrslitakeppni.  Leikurinn í kvöld verður áhugaverður um hvort að SA náði að tryggja sér efsta sæti deildarinnar og um leið heimaleikjaréttinn margfræga.  SR-ingar sem hafa ekki átt sjö dagana sæla í vetur stefna á að velja SA-mönnum vel undir uggum og veita þeim verðuga keppni.

Á lauardag mætast kvennalið Ynja og SR norðan heiða og er það síðastli leikur deildarkeppni kvenna.  Síðar um sama kvöld munu 2. flokkar SA og SR etja kappi.