Hokkíhelgin

Hokkíhelgin að þessu sinni er fjölbreytt og fer fram bæði sunna- og norðanlands.

Á mörgun leika í Laugardalnum lið SA Ásynja og Skautafélags Reykjavíkur og hefst leikurinn klukkan 18.30. Leikurinn verður SR-konum að öllum líkindum erfiður enda mæta Ásynjur með sterkt lið. Meðal annars má nefna að Birna Baldursdóttir er kominn á ísinn aftur og Arndís Sigurðardóttir einnig. 

Á Akureyri fer síðan fram Brynjumótið en þar etja kappi krakkar í 5; 6. og 7. flokki. Enginn vafi á öðru en að þar verði mikið fjör en dagskrá mótsins má finna hér.

Að kvennleiknum í Laugardalnum loknum leika SR og SA í 2. flokki.

Mynd: Ásgrímur Ágústsson

HH