
Frá leik liđanna Mynd: Elvar Freyr Pálsson
SA og Björninn léku í gćrkvöld fyrsta leikinn í úrslitakeppninni um íslandsmeistaratitilinn á Akureyri í gćrkvöld. Leiknum lauk međ sigri SA sem gerđu 7 mörk gegn 3 mörkum Bjarnarkvenna. Ţađ liđ sem verđur fyrr til ađ vinna ţrjá leiki hampar titlinum.
Bćđi liđ mćttu ágćtlega mönnuđ til leiks en hjá SA vantađi ţó landsliđskonuna Bergţóru H Bergţórsdóttir. Bjarnarkonur söknuđu hinsvegar Hönnu Rutar Heimisdóttir en báđar glíma ţćr viđ meiđsli. Ţađ voru Bjarnarkonur sem náđu forystunni á sjöundu mínútu međ marki frá Steinunni Erlu Sigurgeirsdóttir. Ásynjur náđu hinsvegar ađ jafna fjórum mínútum síđar og var ţar á ferđinni Sarah Smiley. Liđin náđu ekki ađ bćta viđ mörkum ţađ sem eftir lifđi lotunnar og stađan ţví 1 – 1 ađ lokinni fyrstu lotu.
Í fyrri hluta annarrar lotu náđu SA hinsvegar forystu en á innan viđ mínútu gerđu ţćr tvö mörk. Fyrra markiđ gerđi Guđrún Blöndal en ţađ síđar Sarah Smiley. Fleiri mörk komu ekki í lotunni og stađan ţví orđin 3 – 1 Ásynjum í vil.
SA-konur komu sér síđan í ţćgilega 4 – 1 stöđu strax í upphafi ţriđju lotu međ marki frá Önnu Sonju Ágústsdóttir. Bjarnarkonur neituđu hinsvegar ađ gefast upp og Flosrún Vaka Jóhannesdóttir minnkađi muninn fyrir ţćr á sjöundu mínútu lotunnar. Birna Baldursdóttir jók hinsvegar muninn fljótlega aftur í 5 – 2 fyrir SAum miđja lotuna. Flosrún Vaka var síđan aftur á ferđinni skömmu síđar og stađan ţví 5 – 3 og enn um sjö mínútur eftir af leiknum. Bjarnarkonur reyndu síđan hvađ ţćr gátu ađ jafna leikinn undir lokin. M.a. tóku ţćr markmann sinn, Karitas Sif Halldórsdóttir, af velli. Ţađ dugđi ţó ekki til og Birna Baldursdóttir klárađi leikinn fyrir SA-konur međ tveimur mörkum undir lokin.
Nćsti leikur liđanna er á morgun í Egilshöll og hefst klukkan 19.30 en nánar ađ ţví síđar.
Mörk/stođsendingar SA:
Birna Baldursdóttir 3/1
Sarah Smiley 2/1
Anna Sonja Ágústsdóttir 1/2
Guđrún Blöndal 1/0
Diljá Sif Björgvinsdóttir 0/1
Guđrún Marín Viđarsdóttir 0/1
Jónína Margrét Guđbjartsdóttir 0/1
Refsingar SA: 12 mínútur
Mörk/stođsendingar Björninn:
Flosrún Vaka Jóhannesdóttir 2/0
Steinunn Sigurgeirsdóttir 1/0
Lilja María Sigfúsdóttir 0/1
Kristín Ingadóttir 0/1
Sigrún Sigmundsdóttir 0/1
Refsingar Björninn: 6 mínútur
HH

Engjavegi 6